2025 í máli og myndum


Ég hef gert svona annál í máli og myndum frá 2015 og er þetta því í ellefta skiptið.  Líkt og áður er þetta fyrst og fremst mér til ánægju og upprifjunar. Þeir sem lesa, gera það á eigin ábyrgð 🙂 Ætla að reyna að hafa þetta sérstaklega stuttan pistil í þetta skiptið og leggja meiri áherslu á ljósmyndir.

Janúar

Árið byrjaði á þeim stóra viðburði að Kristófer fékk afhenta íbúðina sína. Það var ekki mikið sem þurfti að lagfæra en við máluðum hana alla. Kristó hafði ákveðnar skoðanir á hvernig hún ætti að líta út og tók það smá tíma að ná því. En útkoman er ansi flott.

Þá átti gamla konan, hún mamma, stórafmæli í janúar þegar hún varð 80 ára ung, nýkomin með fyrsta tattooið sitt.

Febrúar

Í febrúar skelltum við hjónakornin okkur til Madeira og féllum alveg fyrir þeirri eyju. Hér má lesa smá skýrslu frá þeirri ferð.

Svo var auðvitað matarboð á sínum stað, í þetta sinn til Jónínu Daggar og Friðriks.

Mars

Við byrjuðum mars í sumarbústað á Flúðum með fjölskyldunni og svo þeim mæðgum Svönu, Hjördísi Birtu og mömmu.

Ég seldi einnig mótorfákinn minn en hann hafði verið ansi lítið notaður síðustu ár og því um að gera að leyfa öðrum að njóta. Ég ákvað að kaupa mér annað leikfang sem var dróni og því verður vonandi meira um loftmyndir hér eftir.

Apríl

Í apríl fengu Guðmundur og Rakel afhenta íbúðina sína. Þar þurfti lítið að gera í bili enda stóð til að leigja hana út í 2 ár. Íbúðin var máluð og sitthvað smotterí lagað.

Þá gerði Lena sér lítið fyrir og varð Íslandsmeistari í 1. deild fullorðinna í tvíliðaleik.

Maí

Maí var einnig rólegur en þá skelltu Guðmundur og Lena sér til Noregs í æfingarferð.

Júní

Einn af hápunktum sumarsins var ferð til Spánar í Júní. Með okkur var Lena, Brynjar, Rakel og Guðmundur en Kristó komst því miður ekki. Við vorum í húsi á milli bæjanna Blanes og Lloret de Mar og ferðuðumst aðeins um svæðið en þar stóð Tossa de Mar uppúr, afskaplega fallegt þar. Við Jónína og Lena urðum svo eftir í Barcelona og skoðuðum hana.

Þá var matarboð hjá því mæta fólki Steingrími og Höllu. Einnig fórum við á Hótel Varmaland með mömmu og systkinum mínum og mökum.

Það voru svo stórafmæli í júní þegar Unnur varð 50 ára og Hjördís Birta 6 ára.

Júlí

í júlí hófust svo útilegurnar. Fyrst var farið í fjölskylduútilegu á Arnarstapa en þar var móðurfjölskylda Jónínu sem hittist á 2ja ára fresti.

Svo var lagt af stað í sumarfrí og líkt og áður þá var stefnan á að elta sólina. Og rétt eins og áður þegar það er stefnan þá var haldið austur á land. Í þetta skiptið tjölduðum við á Skipalæk sem kom verulega vel á óvart. Eftir að hafa eytt rúmri viku á Austulandi var haldið í Ásbyrgi þar sem stefnan var sett á nokkrar göngur. Svo var farið í góða dagsferð með Óla og Röggu í Drekagil og Öskju.

Eftir Ásbyrgi var svo brunað í Stykkishólm þar sem við eyddum nokkrum dögum með þeim mæðgum Svönu og Hjördísi Birtu.

Svo var haldið aftur norður þar sem Helga og Úlfar bættust við og var næstu dögum eytt í að hjóla og ganga. Svo bættust Jónína Dögg og Friðrik í hópinn og hjóluðum við inn Flateyjardal sem var held ég besta hjólaferð sumarsins.

Ágúst

Guðmundur gerði sér lítið fyrir og keppti í maraþoni í Reykjavíkurmaraþoni ásamt vinum sínum þeim Stebba og Jón Sverri.

Í lok ágúst var komið að stórum tímamótum þegar Guðmundur flutti til Frankfurt. Stefnan er að búa þar í ca 1,5 til 2 ár og vinna við flugvirkjun og safna tímum sem hann þarf til að geta lokið náminu.

September

Kristófer skellti sér í nám og er að læra leikskólakennarann sem gengur ansi vel hjá stráknum.

Í september var farið með saumaklúbbnum hennar Jónínu og mökum til Króatíu. Gistum við í húsi rétt fyrir utan Omis. Króatía var nýtt land fyrir okkur og fer landið ansi hátt á vinsældarlistann. Svakaleg fegurð og must að heimsækja aftur. Við fórum í siglingu til HVAR, skoðuðum Omis, ókum um ströndina og heimsóttum Split. Lágpunktur ferðarinnar var svo auðvitað gjaldþrot Play sem gerði okkur að strandaglópum. Við þurftum því að fljúga til Munchen og taka þaðan Icelandair heim og fundum vel fyrir verðhækkunum Icelandair.

Október

Október var ansi rólegur hjá okkur en Lena skellti sér í heimsókn til Guðmundar í Frankfurt. Og svo fórum við í matarboð til Helgu og Úlfars.

Nóvember

Mánuðurinn byrjaði á að við fengum finnska stelpu í heimsókn en Lena var að taka þátt í skiptinema prógrammi í skólanum og fer svo út í febrúar til Finnlands.

Við hjónakornin skelltum okkur svo í Reykholt um miðjan mánuðinn og gistum þar í smáhýsi rétt fyrir utan. Við skelltum okkur í nýja lónið, Laugarás Lagoon, sem er ansi vel heppnað.

Desember

Í byrjun desember skelltum við okkur svo til Frankfurt að heimsækja Guðmund, fara með jólagjafir og jólamat þar sem að hann er að vinna um jól og áramót. Fórum í „örfáar“ búðir og svo auðvitað jólamarkað.

Jólin og áramótin voru svo aðeins öðruvísi en venjulega með Guðmund á „fjarfundi“. Í lok desember fórum við svo á verðlauna afhendingu Hafnarfjarðar en þessi hátíð er haldin í lok hvers árs þar sem Íslandsmeistarar ársins fá viðurkenningu. Mikið af flottu íþróttafólk og þar var Lena að fá viðurkenningu í annað skiptið. Flensan setti svo smá strik í reikninginn á gamlárskvöld þar sem rúmur helmingur endaði árið í veikindum. Við gátum þó notið gamlárskvöld í spilamennsku með Guðmund á skjánum.

Við tökum vel á móti 2026.

Flokkar:Uncatagorized

Færðu inn athugasemd